Sérstakur saksóknari hefur ákært þá Sigurð Einarsson, Hreiðar Má Sigurðsson, Ingólf Helgason auk fleiri yfirmanna og starfsmanna Kaupþings fyrir markaðsmisnotkun á mánuðunum fyrir hrun. Sigurður var stjórnarformaður Kaupþings, Hreiðar Már var forstjóri bankans og Ingólfur var yfirmaður Kaupþings á Íslandi. Ákæran er umfangsmikil, 30-40 blaðsíður að lengd og er í nokkrum liðum. Mismunandi er hverjir eru ákærðir í hverjum lið ákærunnar.

Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á Íslandi.
Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á Íslandi.
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

Eins og vb.is sagði frá fyrr í dag varðar ákæran eigin viðskipti Kaupþings í aðdraganda bankahrunsins árið 2008. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, varðist allra frétta þegar vb.is náði í hann í dag.

Viðskiptablaðið fjallaði í nóvember 2009 um rannsóknina á viðskiptum Kaupþings með eigin bréf í aðdraganda hrunsins. Kom þar fram að tap bankans vegna þessara viðskipta hafi numið um 15 milljörðum króna og að markmið viðskiptanna virðist hafa verið að halda verði hlutabréfanna uppi.

Þá er fjallað um viðskipti Kaupþings með eigin bréf í rannsóknarskýrslu Alþingis. Þar segir að viðskiptin síðla árs 2007 og allt árið 2008 hafi raskað með óeðlilegum hætti eftirspurn eftir hlutabréfum í bankanum og gefið til kynna að hún væri allt önnur og meiri heldur en raunin var. Jafnframt hafi bankinn sjálfur borið stærstan hluta áhættunnar af þeim gjörningum. „Ekki fæst annað séð en að hluti slíkra lána hafi verið veittur til þess eins að liðka fyrir sölu eigin hlutabréfa úr veltubók bankans og komast þannig hjá því að senda inn flöggunartilkynningu, án þess þó að draga úr kaupum,“ segir í rannsóknarskýrslunni.