Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur falið Byggðastofnun að meta áhrif ákvörðunar Rússa um að setja innflutningsbann á Ísland. Fréttastofa RÚV greinir frá þessu.

Sigurður Ingi segir að mikilvægt sé að vega saman ákvarðanir vestrænna samfélaga annars vegar og 70 ára viðskiptasögu við Rússa hins vegar áður en frekari ákvarðanir séu teknar um stuðning við viðskiptaþvinganir.

Hann vill hins vegar ekki gefa afgerandi svar um það hvort rétt sé að endurskoða stuðning við viðskiptaþvinganir gegn Rússum.

„Það hefur komið fram að þetta gæti haft verulegt tjón á einstökum svæðum á landinu. Þess vegna hef ég falið Byggðastofnun að gera úttekt á áhrifum þess. Sú úttekt liggur ekki fyrir. Aðalatriðið núna er að allir haldi ró sinni og fari yfir þá heildarhagsmuni sem í húfi eru,“ segir Sigurður Ingi í samtali við RÚV.