Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra útilokar ekki að vegtollar verði teknir upp í framtíðinni að því er Vísir greinir frá.

Segir Sigurður að það kosti að minnsta kosti 60 milljarða að bæta helstu vegi út fyrir höfuðborgarsvæðið, en þar er innifalið tvöföldun Vesturlandsvegar að Hvalfjarðargöngum, lokið sé við tvöföldun Reykjanesbrautar og Suðurlandsvegar að Selfossi. Inni í þessum tölum eru að auki möguleg tvöföldun Hvalfjarðarganga og ný brú yfir Ölfusá.

Sundabraut og borgarlína kæmi ofan á þessa upphæð

„Hér er ég ekki að nefna Sundabraut sem kostar einhverja fimmtíu milljarða plús, borgarlínuna sem menn hafa verið að tala um sem eru sjötíu til áttatíu milljarðar fyrir utan önnur mannvirki sem þarf að gera hérna á höfuðborgarsvæðinu bara í venjulegri umferð,“ segir Sigurður Ingi, en Viðskiptablaðið hefur áður greint frá því að ríkisstjórnin hafi ekki minnst á upptöku veggjalda í stjórnarsáttmála.

Framsóknarflokkurinn, sem Sigurður Ingi leiðir hafði lýst yfir andstöðu við vegatolla til uppbyggingar vegakerfisins í kosningabaráttu sinni, en nú segir Sigurður Ingi að stjórnkerfið þurfi að íhuga alvarlega hvernig fjármagna eigi vegakerfið til framtíðar og þar útilokar hann nú ekki vegatolla og blandaða fjármögnun. „Það er að segja að fara í meira mæli út í framkvæmdir eins og við gerðum með Hvalfjarðargöng,“ segir Sigurður Ingi og nefnir næstu tíu til fimmtán árin í þessu samhengi.

„Þetta verður í framtíðinni meira notendagjöld, afnotagjöld af tilteknum vegum. Einhvers konar veggjöld þar sem þú ert með einhvern kubb í bílnum og GPS og færð svo bara eins og símareikninginn í gamla daga eftir því hvaða kafla þú ert að aka og þeir eru misdýrir og svo færðu bara reikning eftir afnotum.“

Eins o g Viðskiptablaðið hefur sagt frá lét fyrrum samgöngumálaráðherra, Jón Gunnarsson kanna fýsileika veggjalda svo hægt væri að fara í þessar framkvæmdir fyrr og láta ferðamenn taka þátt í kostnaði við uppbyggingu vegakerfisins.