Sigurður Ingi Jóhannsson þingmaður var kosinn varaformaður Framsóknarflokksins á flokksþingi Framsóknarflokksins í dag. Sigurður Ingi hlaut 360 atkvæði af 381 eða 94,7% atkvæða.

Hann tekur við embættinu af Birki Jóni Jónssyni sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs og hyggst láta af þingmennsku í vor.