Sigurður Helgason, stjórnarformaður Icelandair Group, keypti í dag hlutabréf í félaginu fyrir alls 42,2 milljónir króna. Í flöggun til Kauphallarinnar kemur fram að Sigurður keypti fjórar milljónir hluta á genginu 10,55 og á eftir kaupin 14 milljónir hluta í Icelandair.

Lokagengi hlutabréfa í Icelandair í dag var 10,57 krónur og er eignarhlutur Sigurðar því um 148 milljóna króna virði.