Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson hefur gengið úr stjórn 365 miðla. Sigurður er sonur Ingibjargar Pálmadóttur, stærsta eiganda félagsins. Tilkynning frá félaginu um breytingu á stjórn var send til hlutafélagaskrár í maí. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu. Í stað Sigurðar kemur Kristín Þorsteinsdóttir inn í stjórnina. Kristín hefur áður starfað fyrir Iceland Express sem upplýsingafulltrúi, fréttamaður á fréttastofu Ríkissjónvarpsins og á samskiptasviði Baugs. Eftir þessar breytingar skipa Einar Þór Sverrisson og Ingibjörg Pálmadóttir stjórnina ásamt Kristínu en Alma Möller er varamaður í stjórn.