Sigurður Stefánsson hefur verið ráðinn fjármálstjóri CCP hf. og tekur sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Sigurður tekur við starfinu af Joe Gallo sem verið hefur fjármálastjóri frá árinu 2009. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Sigurður hefur frá árinu 2008 gegnt stöðu fjármálastjóra Latabæjar ásamt því að vera staðgengill framkvæmdarstjóra. Hann hefur einnig reynslu af fjármálastjórnun og rekstri. Sigurður var jafnframt annar tveggja framleiðanda Latabæjarþáttana eftir að Turner, dótturfélag Time Warner, keypti Latabæ í september árið 2011.
Áður starfaði Sigurður hjá Íslandsbanka í Danmörku og Noregi, og þar áður hjá Actavis og skatta- og endurskoðunarsviði Deloitte.
Sigurður er löggiltur endurskoðandi með MSc gráðu í fjármálum og stefnumótun frá Copenhagen Business School. Sigurður er kvæntur Stellu Maríu Ármann og eiga þau þrjú börn.