Sigurður Aðils.
Sigurður Aðils.

Sigurður Aðils hefur verið ráðinn svæðisstjóri Optima fyrir Norður- og Austurland. Sigurður starfaði hjá Nýherja frá árinu 1995-2000 m.a. sem sölustjóri heildsölu. Árin 2000-2005 starfaði hann hjá Pennanum og Office 1 í sérverkefnum og verslunarstjórn. Árið 2005 setti Sigurður á fót starfsstöð Nýherja á Akureyri og starfaði þar til ársloka 2012.

Sigurður er giftur Kristínu Sigurðardóttur viðskiptafræðingi og eiga þau tvö börn.