Sigurgeir Þorbjarnarson hefur hafið störf hjá Advania til að leiða sókn fyrirtækisins á sviði fjarfunda- og samvinnulausna.
Hann starfar á rekstrarlausnasviði Advania og veitir fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf um allt sem viðkemur fjarvinnu.

Nú þegar atvinnulífið býr sig undir endurkomu starfsmanna inn á vinnustaði hefur eftirspurn eftir öflugri fjarfundatækni aukist hratt. Advania leggur mikla áherslu á að aðstoða stór og smá fyrirtæki með lausnir á þessu sviði.

Sigurgeir hefur víðtæka reynslu úr upplýsingatæknigeiranum og hefur verið tæknilegur ráðgjafi fjölmargra stórra fyrirtækja. Undanfarin ár hefur hann starfað sem lausnaráðgjafi hjá Sensa. Þar á undan vann hann hjá Dimension Data í Luxemburg, Landsbankanum og Vodafone.

Sigurgeir er með sveinspróf í rafeindavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík og CCNA og CCNP gráður frá Cisco.
Viðskiptavinir Advania njóta góðs af þekkingu Sigurgeirs á sviði fjarfundabúnaðar og lausna nú þegar auknar kröfur eru gerðar um gæði og öryggi rafrænna samskipta.