Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur náð sátt við bankanumm um einkalífeyrissjóð sem hann stofnaði fyrir hrun. Sigurjón hefur flutt sjóðinn til MP banka en á meðal eigna sjóðsins eru skuldabréf í rússneska olíurisanum Gazprom. Þetta kemur fram í frétt Vísir.is.
Lífeyrisréttindi Sigurjón voru áður í Íslenska lífeyrissjóðnum en voru flutt í einkalífeyrissjóðinn sem var í vörslu Landsbankans í apríl 2008. Landsbankinn vildi slíta sjóðnum eftir hrun að kröfu Fjármálaeftirlitsins en Sigurjón hefur náð sátt við bankann og FME.