Sigurjón Friðjónsson
Sigurjón Friðjónsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Sigurjón Friðjónsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri upplýsingatæknisviðs Fiskistofu, en stofnunin er með starfsstöðvar á sex stöðum á landinu og mun Sigurjón hafa aðsetur í höfuðstöðvum Fiskistofu á Akureyri.

Sigurjón hefur starfað hjá Þjóðskrá Íslands frá árinu 2008, fyrst sem sem sviðsstjóri upplýsingatæknisviðs og síðar sem sviðsstjóri þróunarsviðs. Áður hafði hann starfað við hugbúnaðarþróun, ráðgjöf, sem tæknilegur sérfræðingur og við rekstrarþjónustu hjá Tölvuskjölun á árunum 2000-2008.

Sigurjón lauk meistaragráðu í tölvunarfræði frá ríkisháskóla Kaliforníu (California State University) árið 1996 og BA-gráðu í tölvunarfræði frá sama skóla árið 1990. Sigurjón er giftur Önnu Völu Arnardóttur, leikskólakennara, og eiga þau þrjú börn.

Fiskistofa segir meginhlutverk sitt að gæta hagsmuna þjóðarinnar við sjálfbæra nýtingu hafs og vatna og stofnunin leggi áherslu á að nýta upplýsingatækni á skilvirkan hátt og veita viðskiptavinum sínum aðgang af rafrænum lausnum í rauntíma eftir því sem við verður komið.