Sigurjón Þ. Árnason
Sigurjón Þ. Árnason
© BIG (VB MYND/BIG)
Aðalmeðferð í máli Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, gegn hinum endurreista Landsbanka fer fram á 5. október n.k. samkvæmt dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur.

Málið snýr að deilu um lífeyrissjóð Sigurjóns en hann telur að Landsbankinn hafi ekki haft heimild til þess að breyta formi lífeyrissjóðs hans. Sigurjón fékk sett lögbann á þessa aðgerð Landsbankans, að sögn Sigurðar G. Guðjónssonar lögmanns hans, og eru deilurnar því komnar inn á borð dómstóla.