Sigurjón M. Egilsson hefur látið af starfi fréttastjóra 365 að eigin ósk. Í tilkynningu segir að hann hyggist einbeita sér að þætti sínum Sprengisandi á Bylgjunni auk þess sem frekari dagskrárgerð fyrir Bylgjuna verður kynnt innan tíðar. Í tilkynningunni er Sigurjóni þökkuð vel unnin störf á fréttastofunni.

Samhliða þessu verða þær skipulagsbreytingar á fréttastofunni að Andri Ólafsson, Hrund Þórsdóttir og Kolbeinn Tumi Daðason verða aðstoðarritstjórar og Halldór Tinni Sveinsson verður þróunarstjóri.

Andri Ólafsson hefur unnið á ýmsum fjölmiðlum frá árinu 2004. Meðal annars DV, Vísi, Stöð 2 og Fréttablaðinu sem blaða- og fréttamaður, vaktstjóri og fréttastjóri. Nú síðast sem aðstoðarfréttastjóri á fréttastofu 365.

Hrund Þórsdóttir hefur starfað á fjölmiðlum í tíu ár, meðal annars ritstýrt tímaritinu Mannlífi. Hrund hóf störf á fréttastofu Stöðvar 2 fyrir tveimur árum og sem vaktstjóri þar ári síðar.

Kolbeinn Tumi Daðason hefur starfað á fréttastofunni frá árinu 2011, fyrst sem íþróttafréttamaður og síðar sem fréttastjóri og vaktstjóri á Vísi.

Halldór Tinni Sveinsson hefur stýrt Vísi of hefur 15 ára reynslu af dagblaða- og tímaritaútgáfu og vefmiðlun.