Fjölmiðlamaðurinn Sigurjón M. Egilsson hefur verið ráðinn fréttaritstjóri 365. Hann hefur áralanga reynslu í fjölmiðlum, stýrir Sprengisandi á Bylgjunni og var fréttaritstjóri Fréttablaðsins um langt skeið.

Hann hætti þar í júlí árið 2006 til að ritstýra Blaðinu. Þá hefur Sigurjón ritstýrt DV, Útvegsblaðinu og fleiri blöðum.

Tilkynnt var um ráðningu Sigurjóns samhliða því að Mikael Torfason hætti störfum sem aðalritstjóri 365 og að Kristín Þorsteinsdóttir muni taka við starfi hans.