Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi forstjóri Landsbankans, og Elín Sigfúsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs, voru sýknuð af ákærum í svokölluðu Ímon máli í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Steinþór Gunnarsson, sem var yfirmaður verðbréfaviðskipta hjá bankanum, var aftur á móti dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af sex skilorðsbundna.

Ímon málið snýst um níu milljarða króna lánveitingu til félaganna Ímon og Azalea Resources Ltd í tengslum við kaup þeirra á hlutabréfum í bankanum. Ímon var í eigu fjárfestisins Magnúsar Ármann en Azalea Resources skráð á bresku Bresku Jómfrúreyjum og í eigu finnska fjárfestisins Ari Salmivuori, viðskiptafélaga Björgólfs Thors Björgólfssonar, eins af helstu hluthöfum gamla Landsbankans og sonar Björgólfs Guðmundssonar, formanns bankaráðs bankans.