Kaupsýslumaðurinn og kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson hefur samþykkt að kaupa danska eignarhaldsfélagið VG Investment A/S, segir í frétt danska dagblaðsins Jyllands-Posten.

Kaupverðið er 900 milljónir danskra króna (8,9 milljarðar íslenskra króna), segir í fréttinni. Kaupin eru að hluta til fjármögnuð af Íslandsbanka.

VG Investments er staðsett í Vejle og sérhæfir sig í fasteignaviðskiptum. Seljandinn er Peer Slipsager.