Lögfræðingi Sigurjóns Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, var birt stefna í gær. Stefnan tengist tveimur átvikum sem áttu sér stað í aðdraganda falls gamla Landsbankans. Fréttastofa RÚV greinir frá.

Í fréttinni kemur fram að rannsókn sérfræðinga slitastjórnarinnar, á óeðlilegum ráðstöfunum í aðdraganda falls hans, er nánast lokið og eru fleiri stefnur væntanlegar.

Slitastjórn og skilanefnd Landsbankans stefndu í síðustu viku þeim Halldóri J. Kristjánssyni fyrrverandi bankastjóra Landsbankans og Elínu Sigfúsdóttur sem var forstöðumaður fyrirtækjasviðs Landsbankans. Elínu var stefnt vegna ábyrgða sem Kaupþing veitti til að tryggja lán úr Landsbankanum, en voru ekki innheimtar. Halldóri var einnig stefnt vegna þess máls og vegna millifærslna upp á átján milljarða til Straums Burðaráss, nokkrum dögum áður en Landsbankinn varð gjaldþrota.

Samkvæmt upplýsingum frá slitastjórn bankans, og RÚV greinir frá, er stefnan sem birt var lögfræðingi Sigurjóns í gær vegna sömu mála og Halldóri var stefnt vegna.