Fjárfestirinn Sigurður Bollason hefur selt eignarhluti sína í FL Group og Dagsbrún, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Sigurður hefur selt eignarhluti sína í félögunum Icon ehf. og Runni ehf., en kaupandinn er Materia Invest ehf., sem er í eigu Magnúsar Ármann, Kevin Stanford og Þorsteins M. Jónssonar.

Icon ehf. er eigandi 7,77% hlutafjár í FL Group hf. og Runnur ehf. er eigandi 12,95% hlutafjár í Dagsbrún hf.

Magnús Ármann er stjórnarmaður í FL Group og Dagsbrún. Þorsteinn M. Jónsson er varaformaður stjórnar FL Group.