Sigurður Bragi Guðmundsson er tekinn við sem framkvæmdastjóri Green Diamond Traction Solution ehf. (GDTS), sem framleiðir harðkornasóla og er hann staðsettur í Kína. Sigurður Bragi var síðast forstjóri Plastprents og Sigurplasts.

Óskar Jónsson, sem hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra til þessa, er kominn heim og er samkvæmt upplýsingum blaðsins að skoða nýja möguleika varðandi markaðssetningu á Green Diamond skónum. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu er það enn að byggja sig upp en samdráttur í Kína undanfarið hefur tafið fyrir. Heimir Sigurðsson hjá Festingu (sem er í eigu Kjalars) hefur tekið við sem stjórnarformaður og nú eru eingöngu Íslendingar í stjórninni.