Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarformaður Kaupþings, segir í skriflegu svari til MarketWatch.com að bankinn hafi laust til fé til að standa undir skuldbindingum sínum næstu 360 daga. „Allt það lausafé til reiðu innan 15 daga," segir Sigurður.

„Skuldatryggingaálag og ávöxtunarkrafa skuldabréfa okkar endurspegla hvorki lánshæfi né fjármagnskostnað okkar, heldur almenna hræðslu á mörkuðum," segir stjórnarformaðurinn.