Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings sagði í ræða á málstofu BSRB um lífeyrismál að eitt helsta vandamál íslensks fjármálamarkaðar sé að ekki hefur tekist að laða að erlenda langtímafjárfesta.

„Ein augljós hindrun í því er íslenska krónan. Þótt margir erlendir lífeyrissjóðir vilji gjarnan fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum og geti vel sætt sig við þá áhættu sem slík fyrirtæki bæta við vel dreift eignasafn, vilja þeir síður taka á sig þá viðbótaráhættu sem felst í gjaldmiðlinum. Önnur ástæða þessa er krónan, eða öllu heldur hvernig hún hefur verið markaðssett af Seðlabankanum,“ sagði Sigurður en bætti því við að Seðlabankinn hefði hvatt til vaxtamunaviðskipta með háum skammtímavöxtum.

„Það þarf engan doktor í hagfræði til að sjá að hvorki núverandi viðskiptahalli né vaxtastig gengur til langframa. Fyrr en síðar munu vextir lækka og gengi krónunnar leita jafnvægis. Þeir sem fjárfesta í krónubréfum vita því mæta vel að brátt mun verðgildi þeirra rýrna. Líkast til telja þeir sjálfum sér trú um að þegar það gerist geti þeir selt á undan öllum öðrum. Það veldur síðan því, að þegar krónan leitar jafnvægis verður að öllum líkindum mikið yfirskot. Það eru með öðrum orðum ekki langtímafjárfestar sem fjárfesta í krónubréfum, en ástæða er til að ætla að töluvert sé um spennufíkla. Það getur ekki talist heilbrigt,“ sagði Sigurður.

Sigurður sagði Seðlabankann hafa sópað verðbólgunni undir teppið með því að hækka vexti. Bankinn styrkti gengi krónunnar „sem aftur hefur valdið lækkun á verði innfluttrar vöru og þannig breitt yfir innlenda verðbólgu að nokkru leyti.“

Hann sagði gallan við þessa aðferð vera að gengi krónunnar hefði engin áhrif á vísitölu neysluverðs og þannig væri verðbólgu sópað undir teppið.

Vill sjá alþjóðlega fjármálamiðstöð

Sigurður sagði Ísland tilvalið fyrir Ísland að marka sér bás sem alþjóðleg fjármálamiðstöð.

„Hér höfum við reynsluna, menntunarstigið er hátt, fjármálaþjónusta greiðir há laun, afleidd störf eru mörg og eftirsóknarverð. Og staðsetning landsins er ekki hamlandi ólíkt því sem gerist í margs konar öðrum þjónustustörfum. Ég bind enn vonir við það, að stjórnvöld taki efni skýrslunnar til gaumgæfilegrar athugunar,“ sagði Sigurður og vísaði þar í skýrslu nefndar sem hann gegni formennsku í sem fjallaði um undirbúning þess að setja á stofn alþjóðlega fjármálamiðstöð hér á landi.

Lífeyrissjóðirnir mikilvægir

Í máli Sigurðar kom fram að hann teldi ekkert íslenskt fyrirtæki hefði farið í útrás án þess að lífeyrissjóðir væru meðal fjárfesta.

„Eðli síns vegna eru lífeyrissjóðir mjög æskilegir fjárfestar fyrir fyrirtæki, já ég segi æskilegir fjárfestar jafnvel þótt öllum sé heimilt að kaupa og selja fyrirtæki sem skráð er á markaði. Fjárfestingarrammi lífeyrissjóða er mun lengri en flestra annarra fjárfesta þannig að eign þeirra skapar ákjósanlega kjölfestu í hluthafahópi og gerir fyrirtækjum kleift að horfa lengra fram á veg í ákvörðunum sínum," sagði Sigurður.