Íslendingasagnaútgáfan, félag sem meðal annars er í eigu Sigurðar G. Guðjónssonar og Mikaels Torfasonar, gekk í dag frá kaupum á öllum tímaritum Tímaritaútgáfunnar Fróða ehf., segir í fréttatilkynningu. Kaupin ganga formlega í gegn 1. september. Kaupverð er ekki gefið upp.

Í tilkynningunni segir að Íslendingasagnaútgáfan muni halda áfram útgáfu allra tímarita Fróða. Búið er að kynna eigendaskiptin fyrir starfsfólki útgáfunnar og öllum mun verða boðið að vinna áfram að útgáfu tímaritanna. Starfsemin mun verða áfram til húsa að Höfðabakka 9 fyrst um sinn.

"Mikill hugur er í starfsfólki útgáfunnar og ljóst er að með nýjum eigendum kemur aukinn kraftur í útgáfustarfsemina, segir í tilkynningunni