Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi bresk stjórnvöld harðlega fyrir beitingu hryðjuverkalaga gegn Landsbankanum, á fundi þingmannanefndar um Norðurskautsmál sem haldin var í Östersund í Svíþjóð í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Á fundinum voru saman komnir þingmenn frá öllum Norðurlöndunum, Kanada, Rússlandi og Evrópuþinginu.  Sigurður Kári sagði að fyrir því væru engin fordæmi að aðildarríki NATO beiti hryðjuverkalögum gegn öðru NATO ríki og í raun sé um misbeitingu laganna að ræða, þar sem algjörlega er horft framhjá upprunalegum tilgangi þeirra.  Með beitingu laganna gegn Íslandi og Íslendingum hafi bresk stjórnvöld sett þjóðina í hóp með Talíbönum, hriðjuverkasamtökunum Al Qaida, Norður-Kóreu, Íran og Súdan sem Bretland hafði áður beitt sambærilegum aðgerðum gegn.

Slíkum aðgerðum lýsti Sigurður Kári sem fullkomlega óásættanlegum. Hann benti enn fremur á að í öðrum ríkjum þar sem íslenskir bankar hafa starfrækt útibú hafi ríksstjórnir unnið faglega með íslensku bönkunum við að leysa þau vandamál sem komið hafa upp í kjölfar fjármálakreppunnar.

Í framhaldinu hvatti hann þingmenn aðildarríkjanna til að koma á framfæri sambærilegri gagnrýni gagnvart breskum stjórnvöldum og misbeitingu laganna, segir í tilkynningunni.

Þingmannanefnd um norðurskautsmál er samstarfsvettvangur þingmanna norðurskautsríkjanna átta Íslands, Rússlands, Bandaríkjanna, Noregs, Finnlands, Danmerkur, Svíþjóðar og Kanada auk Evrópuþingins. Helstu málefnasvið norðurskautssamstarfsins lúta að sjálfbærri þróun, umhverfis- og náttúruvernd. Sérstök áhersla er einnig lögð á varðveislu menningararfleifðar og lífshátta norðlægra þjóðflokka sem og aukna efnahagslega og félagslega velferð íbúa norðursins.

Búast má við því að aukin efnahagsleg umsvif á norðurslóðum og loftslagsbreytingar muni á næstu árum færa norðurskautið enn hærra á dagskrá alþjóðasamfélagsins, segir í tilkynningunni.