Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir á heimasíðu sinni frumvarp til breytinga á stjórnarskrá Íslands sem lagt var fram á Alþingi í vikunni.

Í umfjöllun sinni víkur Sigurður Kári að ákvæði í frumvarpinu þar sem segir:

„Frumvarp til breytinga eða viðauka á stjórnarskrá þessari má bera upp á Alþingi.  Þegar Alþingi hefur samþykkt frumvarpið skal það borið undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu í leynilegri atkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar.  Atkvæðagreiðslan skal fara fram í fyrsta lagi einum mánuði og í síðasta lagi þremur mánuðum eftir samþykkt frumvarpsins á Alþingi.  Sé meirihluti gildra atkvæða fylgjandi frumvarpinu, þó minnst 25 af hundraði allra kjósenda á kjörskrá, skal það staðfest af forseta Íslands og öðlast þá gildi sem stjórnskipunarlög.“

„Þetta þýðir á mannamáli að einungis 25% kosningabærra manna í landinu getur breytt stjórnarskránni, grundvallarlögum lýðveldisins,“ segir Sigurður Kári á heimasíðu sinni.

„Það þýðir að lítill hluti þjóðarinnar getur samþykkt grundvallarbreytingar á stjórnskipan landsins, fullveldi þess og þeim réttindum sem borgurunum eru tryggð í stjórnarskránni. Ég trúi því ekki að flutningsmönnum frumvarpsins sé alvara með þessum tillöguflutningi.“

Sigurður Kári segir að það vera lágmarkskröfu að breytingar á stjórnarskránni þurfi að hljóta samþykki að minnsta kosti meirihluta þjóðarinnar til þess að þær öðlist gildi.

„Það er einfaldlega ekki í samræmi við þau grundvallarsjónarmið lýðræðisins sem ég aðhyllist að einungis 25% þjóðarinnar geti knúið fram breytingar á sjálfri stjórnarskránni,“ segir Sigurður Kári.