Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist undrast þau orð Gylfa Magnússonar, viðskiptaráðherra í breska blaðinu Financial Times í dag að engin áform séu uppi af hálfu íslenskra stjórnvalda að leita til dómstóla vegna beitingu breskra yfirvalda á hryðjuverkalögum.

Þetta sagði Sigurður Kári í utandagsskrárumræðu á Alþingi í dag

„Frá því að Bretar beittu hryðjuverkalögum á okkur Íslendinga hef ég alltaf verið þeirrar skoðunar að draga bæri bresk stjórnvöld fyrir dómstóla til þess að svara fyrir gjörðir sínar, en einnig til þess að íslenska þjóðin sýndi með afgerandi og táknrænum hætti að hún sætti sig ekki við að vera meðhöndluð sem hryðjuverkamenn,“ sagði Sigurður Kára í ræðu sinni.

„Undir þá skoðun mína tóku þingmenn þegar þeir samþykktu frumvarp mitt sem lög frá Alþingi og ég hef ekki orðið var við annað en að þjóðin sé sömu skoðunar.“

Þá vakti Sigurður Kári athygli á því að breska fjármálaráðuneytið hefði, eðlilega, fagnað ummælum viðskiptaráðherra og því sé lýst í frétt Financial Times að með þessari niðurstöðu sé lokið einni hörðustu deildu Íslands og Bretlands frá því í þorskastríðinu.

„Það kemur mér verulega á óvart og veldur miklum vonbrigðum, svo ekki sé meira sagt, að ákvarðanir um að Íslendingar ætli ekki, þrátt fyrir þá gríðarlegu þjóðarhagsmuni sem í húfi eru, fyrir almenning, bankakerfið, stolt íslensku þjóðarinnar og sjálfsmynd hennar, að höfða mál gegn breskum stjórnvöldum og að sú ákvörðun hafi verið kynnt af hæstvirtum viðskiptaráðherra í erlendu dagblaði,“ sagði Sigurður Kára.

„Samkvæmt mínum upplýsingum liggur ekki fyrir ríkisstjórnarsamþykkt á bak við þessa yfirlýsingu hæstvirts viðskiptaráðherra. Ákvörðunin hefur ekki verið rædd á vettvangi utanríkismálanefndar og heldur ekki  hér á Alþingi.“