Sigurður Már Jónsson hefur verið ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins en Haraldur Johannessen hefur sagt starfi sínu lausu sem ritstjóri.

Sigurður Már hefur starfað á Viðskiptablaðinu frá árinu 1995, síðustu ár sem aðstoðarritstjóri blaðsins.

Pétur Árni Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Mylluseturs, útgáfufélags Viðskiptablaðsins, Fiskifrétta, Hesta og hestamanna, Holu í höggi og tengdra miðla.

Engar aðrar breytingar eru fyrirhugaðar á rekstri eða útgáfu Viðskiptablaðsins og það mun hér eftir sem hingað til sinna mikilvægu hlutverki sínu sem blað atvinnulífsins.