Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur ráðið Sigurð Tómas Magnússon, sérfræðing við lagadeild Háskólans í Reykjavík, til að stýra undirbúningi að stofnun nýs embættis héraðssaksóknara. Samkvæmt lögum um meðferð sakamála sem samþykkt voru á Alþingi í vor verður ákæruvaldið þrískipt og skal embætti héraðssaksóknara taka til starfa 1. janúar 2009, segir í fréttatilkynningu.

Undirbúningsvinna hefst nú þegar og er verkefnisstjóra falið að skila tillögum til ráðuneytisins m.a. um starfsmannafjölda, tilfærslu starfa frá öðrum embættum, uppbyggingu embættisins í stórum dráttum, fjárþörf, húsnæðismál, upplýsinga- og tölvukerfi og önnur atriði, eftir því sem verkinu miðar. Þá skal verkefnisstjóri gera tillögur um nauðsynlegar eða æskilegar breytingar á lögum, reglugerðum eða reglum sem varða hið nýja embætti, verkefni þess og samskipti við önnur embætti.

Hið nýja embætti héraðssaksóknara skal taka ákvörðun um saksókn á fyrsta stjórnsýslustigi í nánast öllum meiri háttar sakamálum. Samkvæmt lögunum er gert ráð fyrir því að héraðssaksóknara til aðstoðar verði varahéraðssaksóknari og saksóknarar en ráðherra ákveður fjölda þeirra í samráði við ríkissaksóknara. Við embættið skal vera sérstök deild skatta- og efnahagsbrota.