Sigurður Tómas Magnússon lögfræðingur hefur tekið við stöðu atvinnulífsprófessors við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Hann er fyrstur til að gegna þeirri stöðu við HR.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá HR en samkvæmt reglugerð skólans geta þeir einir orðið atvinnulífsprófessorar sem verið hafa leiðandi í atvinnulífinu á sínu sérsviði, eru þekktir af verkum sínum og viðurkenndir sem áhrifavaldar á vinnubrögð í faginu. „Atvinnulífsprófessor skal einnig hafa sýnt fram á ótvíræða hæfni til kennslu og miðlunar á háskólastigi,“ segir í tilkynningunni. Sigurður Tómas hefur kennt við lagadeild HR frá árinu 2003, fyrst sem stundakennari en síðan eða frá 2004 sem fastráðinn sérfræðingur og aðalkennari í réttarfari. Sigurður Tómas hefur samhliða kennslu og rannsóknum við lagadeild HR verið lögfræðilegur ráðgjafi sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins frá 2009. Matsnefnd til að meta hæfi Sigurður Tómasar til að gegna umræddri stöðu var skipuð þeim Guðrúnu Erlendsdóttur, fyrrverandi hæstaréttardómara en hún var jafnframt formaður nefndarinnar, dr. juris Guðmundi Sigurðssyni, prófessor við lagadeild HR, og Ragnari Aðalsteinssyni hæstaréttarlögmanni.