Silchester International hefur aukið hlut sinn í íþróttavöruframleiðandanum Amer Sports í 15,08%. Flöggunatilkynning þessa efnis barst OMX Helsinki í morgun. Félagið er nú stærsti hluthafinn.

Silchester er nú orðinn stærri hluthafi í félaginu en fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, Novator. Félagið á 10,5% í Amer Sports.

Þriðji stærsti hluthafi Amer Sports er Danske Bank, með 9,5% hlut í félaginu.