Dótturfélag Síldarvinnslunnar, Bergur ehf., í Vestmannaeyjum hefur samþykkt að selja Berg VE 44 til Vísis í Grindavík. Annað dótturfélag þess, Runólfur Hallfreðsson, hefur gengið frá sölu á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70 til erlendra aðila. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar.

Bergur verður afhentur nýjum eigendum í næsta mánuði. Skipið er með um 1600 þorskígildi en skipið er þó selt án aflaheimilda. Í kjölfar sölunnar kaupir Bergur ehf. Bergey VE 144 af móðurfélaginu Bergur Huginn ehf.

„Er um að ræða hagræðingaraðgerðir til að auka nýtingu skipa félagsins. Þess skal getið að skerðingar Síldarvinnslusamstæðunnar námu um 1500 tonnum í bolfiski fyrir komandi fiskveiðiár,“ segir í tilkynningunni.

Salan á Bjarna Ólafssyni er háð fyrirvörum af hálfu kaupenda sem greint verður frá fljótlega. „Ef af verður verður skipið afhent á haustmánuðum til nýrra eigenda. Eins og kunnugt er tók Síldarvinnslan á móti nýju skipi í júníbyrjun sem fékk nafnið Börkur. Í kjölfarið mun eldri Börkur fá nafnið Bjarni Ólafsson AK 70 og mun áhöfn og aflaheimildir þá flytjast á milli,“ segir í tilkynningunni.