Stjórn Síldarvinnslunnar hefur ákveðið að hefja undirbúning á skráningu hlutabréfa félagsins á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi. Hefur félagið ráðið fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans til að hafa umsjón með verkefninu. Auk þess munu LEX lögmannsstofa og endurskoðendafyrirtækið EY sjá um gerð áreiðanleikakannana. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef félagsins.

Í tilkynningunni segir að stjórn Síldarvinnslunnar telji félagið vel til þess fallið að vera skráð á markað hvað stærð varði. Gangi allur undirbúningur eftir sé stefnt að skráningu á fyrri helmingi þessa árs.

Síldarvinnslan er með höfuðstöðvar í Neskaupstað og starfa um 360 manns hjá félaginu.

„Síldarvinnslan er eitt af stærstu og öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og er stærsti framleiðandi uppsjávarafurða á Íslandi. Fjárfestingar síðustu ára hafa miðað að því að styrkja félagið í bolfiskheimildum og fjölga þannig tekjustoðum félagsins. Félagið leggur áherslu á sjálfbæra nýtingu sjávarauðlindarinnar, þar sem leitast er við að nota nýjustu tækni sem völ er á til veiða og vinnslu,“ segir í tilkynningu Síldarvinnslunnar.

Markvisst hafi verið ráðist í fjárfestingar í skipum og vinnslum til þess að auka gæði, nýtingu og verðmæti sjávarafurða auk þess að draga úr kolefnisspori við veiðar og vinnslu.

„Þessi vegferð er farin með það í huga að efla félagið og opna Síldarvinnsluna fyrir fjárfestum. Sjávarútvegurinn er undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar og er Síldarvinnslan meðal stærstu og öflugustu sjávarútvegsfélaga landsins. Með skráningu félagsins á markað fjölgar tækifærum fjárfesta til að koma að sjávarútvegi. Íslenskur sjávarútvegur er framsækin atvinnugrein þar sem stöðugt er unnið að aukinni verðmætasköpun auðlindarinnar samhliða áskorunum í að draga úr kolefnisspori og umhverfisáhrifum greinarinnar," er haft eftir Gunnþóri Ingvasyni, forstjóra Síldarvinnslunnar, í fréttatilkynningunni.