Á aðalfundi Síldarvinnslunnar sem haldinn var síðastliðinn föstudag kom fram að áformað er að endurnýja allan ísfisktogaraflota fyrirtækisins á næstu árum. Skipin sem hér um ræðir eru Barði NK, Gullver NS, Vestmannaey VE og Bergey VE. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Síldarvinnslunnar , en Fiskifréttir fjalla einnig um málið.

Togararnir Barði og Gullver eru gerðir út af Síldarvinnslunni en Vestmannaey og Bergey eru gerðir út af dótturfélaginu Bergur-Huginn. Barði NK var smíðaður árið 1989, Gullver árið 1983, en Vestmannaey og Bergey árið 2007.

Þegar er hafinn undirbúningur að þessu umfangsmikla verkefni og reyndar hófst hann á síðasta ári að sögn Gunnþórs B. Ingvasonar framkvæmdastjóra.

„Sem liður í þessari endurnýjun var Bjartur NK seldur á síðasta ári til Íran og um þessar mundir er unnið að sölu á Barða NK til Rússlands. Blængur NK, áður Freri RE, hefur verið endurbyggður sem öflugur frystitogari og var hann tekinn í notkun fyrr á þessu ári. Hvað varðar söluna á Barða þá mun myndast eitthvað tómarúm frá sölunni og þar til nýtt skip kemur og verður leitast við að bjóða sjómönnunum sem lenda í slíku millibilsástandi störf á öðrum skipum félagsins eða í landi auk þess sem aðrar lausnir verða skoðaðar. Endurnýjun skipa eins og hér um ræðir er stór ákvörðun en stefnan er skýr; fyrirtækið vill vera í fremstu röð hvað varðar hagkvæmni í rekstri, meðhöndlun afla og starfsumhverfi sjómanna. Þetta er metnaðarfullt og ögrandi verkefni sem felur í sér stórt framfaraskref,“ sagði Gunnþór.