Silja Mist Sigurkarlsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Orku náttúrunnar og markaðssérfræðingur Orkuveitu Reykjavíkur. Greint er frá ráðningu hennar í fréttatilkynningu.

Hún kemur til fyrirtækisins frá Nóa Síríus þar sem hún hefur gegnt stöðu markaðsstjóra síðustu ár. Silja verður hluti af einingu innan OR sem kallast Samskipti og samfélag en sú eining sér um öll markaðs- og kynningarmál OR samstæðunnar.

Silja sem fædd er árið 1991 hóf störf hjá Nóa Síríus árið 2016 eftir að hún lauk námi í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík, fyrst sem vöruþróunarstjóri og síðar sem markaðsstjóri. Silja hefur meðfram vinnu sinni sinnt kennslu í markaðsfræðum og vöruþróun við Háskólann í Reykjavík.

Silja Mist Sigurkarlsdóttir markaðsstjóri Orku náttúrunnar:

„Síðustu sex ár hafa verið mögnuð reynsla fyrir mig sem mun klárlega hjálpa mér í að takast á við þær áskoranir sem fram undan eru hjá Orku náttúrunnar. Á raforkumarkaði ríkir afar spennandi samkeppnisumhverfi sem ég er spennt að takast á við með umhverfismálin sem ég brenn svo fyrir að leiðarljósi. Það er klárt mál að þegar kemur að orkuskiptunum eru áskoranirnar stórar og ég get ekki beðið eftir því að takast á við þær með því frábæra fólki sem ég veit að starfar hjá Orku náttúrunnar."

Breki Logason stjórnandi Samskipta og samfélags:

„Við hjá Orkuveitu samstæðunni erum afar glöð og ánægð með að fá Silju Mist til liðs við okkur enda hefur hún vakið verðskuldaða athygli fyrir störf sín hjá Nóa Síríus. Silja er með frábæra sýn og nálgun á markaðsmálin sem mun klárlega nýtast okkur í baráttunni í því kvika samkeppnisumhverfi sem raforkumarkaðurinn er."