Íslandsbanki hefur tekið ákvörðun um að símaskiptiborð bankans verði staðsett á Ísafirði. Tveir starfsmenn hefja störf við símaskiptaborðið á Ísafirði á næstu vikum og er gert ráð fyrir að stöðugildin verði orðin yfir tíu á fyrri hluta ársins 2006.

Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að breytingin mun gerast í áföngum þannig að nýráðningar á símaskiptiborðið verða á Ísafirði, en núverandi skiptiborð verður starfrækt áfram í Reykjavík um sinn. Símaskiptiborð Íslandsbanka verður staðsett í útibúi Íslandsbanka að Hafnarstræti 1 á Ísafirði. Níu starfsmenn vinna í útibúinu, þannig að heildarstarfsmannafjöldi verður um 20 á fyrri hluta ársins 2006.

Hallgrímur Magnús Sigurjónsson útibússtjóri á Ísafirði hafði forgöngu um málið innan Íslandsbanka. Ísafjörður þykir henta afar vel fyrir símaskiptiborð bankans, þar sem vinnumarkaður er nógu stór og tækniþekking til staðar, auk þess sem bankinn styrkir með þessu tengsl sín við byggðalagið.

Í dag vinna tíu starfsmenn við símaskiptiborð Íslandsbanka og eru stöðugildin átta. Símaskiptiborðið tekur við öllum símhringingum sem bankanum berast og er það staðsett við höfuðstöðvar bankans að Kirkjusandi. Þeir tveir starfsmenn sem ráðnir verða á næstu vikum bætast við starfsmannafjöldann og er gert ráð fyrir frekari fjölgun á næstu mánuðum vegna aukinna verkefna.

Ekki hefur komið til neinna uppsagna vegna flutnings símaskiptiborðsins. Íslandsbanki mun leitast við að flytja þá starfsmenn símaskiptiborðsins sem þess óska til í starfi innan bankans og bjóða þeim upp á endurmenntun í því skyni segir í tilkynningu bankans.