Síminn hefur fengið úthlutað tilraunaleyfi frá Póst og fjarskiptastofnun fyrir langdrægt 3G farsímakerfi. Kerfið er samkvæmt UMTS staðli og nýtir 900MHz tíðni sem er sama tíðni og hefðbundin GSM kerfi nota. UMTS staðallinn er viðurkenndur 3G staðall fyrir farsímaþjónustu og er sá sami og Síminn hefur notað við uppbyggingu á 3G kerfi Símans á höfuðborgarsvæðinu, á Akureyri og í Leifsstöð, en þar er 2100 MHz tíðni notuð, segir í frétt frá Símanum.

Helstu kostir þessa kerfis umfram hefðbundin langdræg GSM kerfi eru þeir að drægni þess er allt að 50% meiri auk þess sem mögulegur gagnahraði í þessu nýja 3G kerfi er allt að þúsundfaldur á við það sem býðst í langdrægum GSM kerfum.   Munurinn á þessum tveimur tíðnisviðum, þ.e. UMTS 2100 og UMTS 900, felst einna helst í því að útbreiðslueiginleikar lægri tíðna eru almennt betri og má því vænta umtalsverðs meiri gagnahraða í mikilli fjarlægð frá sendistöðvum.

Síminn er tæknilega í fremstu röð fjarskiptafyrirtækja, segir í fréttinni, sem bjóða upp á 3G þjónustu í heiminum í dag og er eitt eitt örfárra fjarskiptafyrirtækja sem hefur prófanir sem þessar. Tilraunakerfið er sett upp í samvinnu við Ericsson sem er leiðandi fyrirtæki í þróun og sölu á fjarskiptabúnaði í heiminum.

Síminn vinnur þessa dagana að uppsetningu á búnaðinum á Suðurlandi og áætlar að hefja tilraunir í þessari viku.