Síminn hefur stefnt Vodafone vegna ofrukkunar á lúkningargjöldum sem innheimt voru fyrir hverja mínútu sem enduðu í farsímakerfi Vodafone.

Forsaga málsins er sú að þann 1. nóvember síðastliðinn stefndi Vodafone Símanum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu skaðabóta vegna brota á samkeppnislögum á árunum 2001 til 2007. Brotin fólust í ofrukkun á lúkningargjöldum sem innheimt voru fyrir hverja talaða mínútu í símtölum sem enduðu í farsímakerfi Símans. Vodafone telur að ofgreiðslur Vodafone vegna þessa hafi numið 913 milljónum króna á tímabilinu og krafðist félagið þess að fá þá upphæð endurgreidda auk vaxta. Kröfugerð Vodafone byggir m.a. á niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Síminn hefur nú gagnstefnt Vodafone fyrir sambærilegan ólögmætan verðþrýsting sem hann telur Vodafone hafa beitt Símann á sama tímabili og ofangreind stefna Vodafone á hendur Símanum nær til. Krafa Símans á hendur Vodafone er með vöxtum að fjárhæð 2,5 milljarðar króna.

Í tilkynningu frá Vodfone segir Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi þann grundvallarmun vera á stefnum Símans og Vodafone, að stefna Vodafone á hendur Símanum eigi sér stoð í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og áfrýjunarnefndar samkeppnismála, en kröfugerð Símans á hendur Vodafone geri það ekki. Síminn hefur farið þess á leit við dómstóla að málin verði sameinuð í eitt mál.

Vodafone ítrekar að óvissa ríkir um niðurstöðu dómsmálsins. Tapi Vodafone dómsmáli þessu mun það hafa neikvæð áhrif á rekstur félagsins en vinni Vodafone málið mun það, líkt og áður hefur komið fram, hafa jákvæð áhrif á fjárhag félagsins.