Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,25% í dag en viðskipti á hlutabréfamarkaði námu tæplega 2,1 milljarði króna. Aðalvísitala skuldabréfa lækkaði um 0,01% og stendur því í 1.365,25 stigum, en viðskipti með skuldabréf námu tæplega 4,8 milljörðum króna.

Síminn hækkaði mest eða um 0,85% en bréf félagsins stóðu í 4,18 krónum við lokun markaða. Jafnframt voru mestu viðskiptin með bréf Símans en þau námu ríflega 888 milljónum króna. Næst mest lækkuðu bréf Eimskips en í óverulegum viðskiptum.

Mest lækkun var á bréfum Icelandair eða 0,66% lækkun en bréf flugfélagsins stóðu í 15,15 krónum við lokun markaða. Lítil viðskipti voru þó með bréfin en þau námu aðeins rúmum 8 milljónum króna. Þá lækkuðu bréf Marel um 0,62% en þau enduðu í 319,00 krónum. Töluverð viðskipti voru með bréf Marel eða rúmar 878 milljónir króna.

Vísitölur Gamma

Hlutabréfavísitala Gamma lækkaði um 0,21% í dag í 2 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala Gamma lækkaði um 0,02% í 4 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,01% í 1 milljarðs viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,03% í 3 milljarða viðskiptum.