Síminn hefur keypt öll hlutabréf í Aerofone, sem er eitt af öflugri þjónustufyrirtækjum á breskum farsímamarkaði, segir í fréttatilkynningu frá Símanum. Markmiðið með kaupunum er að efla enn frekar þjónustuna við viðskiptavini Símans í Bretlandi. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
"Starfsemi Aerofone fellur mjög vel að starfsemi Símans en þjónusta okkar í Bretlandi miðar að því að bjóða upp á alla almenna fjarskiptaþjónustu ásamt því að Síminn mun leggja til nýjar virðisaukandi lausnir sem boðnar verða á fyrirtækjamarkaði í Bretlandi. Aðaláherslan verður á lítil og meðalstór fyrirtæki á grundvelli þeirrar tækni sem þarlendir samstarfsaðilar okkar ráða yfir,? segir Sævar Freyr Þráinsson, framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Símans.
Síminn segir að eitt af markmiðum félagsins sé að fylgja eftir útrás íslenskra fyrirtækja og í þeim tilgangi hefur verið komið á fót starfsemi í London undir nafninu Síminn UK.
?Kaupin á Aerofone styðja þessa starfsemi til mikilla muna. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í sölu á farsímaþjónustu til lítilla og meðalstórra fyrirtækja og fellur starfsemin því afar vel að starfsemi Símans sem getur nú boðið viðskiptavinum sínum á Bretlandseyjum alla fjarskiptaþjónustu,? segir í tilkynningunni.
Aerofone var stofnað árið 1985. Fyrirtækið hefur hlotið fjölda tilnefninga og verðlauna fyrir þjónustu sína hjá samtökum breskra símafyrirtækja, Mobile News Awards. Fyrirtækið er staðsett í Bedford.
Sævar Freyr Þráinsson, framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Símans, er nýr stjórnarformaður Aerofone. Aðrir í stjórn eru Ásmundur Tryggvason lögfræðingur hjá Exista og Þór Jes Þórisson, framkvæmdastjóri Tæknisviðs Símans. Jo Marks, ein af stofnendum Aerofone, hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Jo Marks sagði við þetta tilefni að fyrirtækið hefði þurft að finna sterkan samstarfsaðila, sem þekkti vel fjarskiptaþarfir meðalstórra fyrirtækja og gæti boðið viðskiptavinum upp á víðtækari þjónustu. Eftir ítarlegar viðræður við stjórnendur Símans hafi hún ákveðið að Síminn væri réttur samstarfsaðili og gengið til samninga um sölu fyrirtækisins.