Síminn mun taka við af Högum í OMXI8 vísitölunni þann 4. janúar nk. Samsetning vísitölunnar verður því eftirfarandi

  • Eimskipafélag Íslands hf. (EIM)
  • HB Grandi hf. (GRND)
  • Icelandair Group hf. (ICEAIR)
  • Marel hf. (MARL)
  • N1 hf. (N1)
  • Reitir fasteignafélag hf. (REITIR)
  • Síminn hf. (SIMINN)
  • Vátryggingafélag Íslands hf. (VIS)

OMX Iceland 8 vísitalan er Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland og er samsett af þeim átta félögum sem hafa mestan seljanleika á Nasdaq Iceland. Vægi félaga í OMX Iceland 8 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum á Nasdaq Iceland er hluti af vísitölunni.