Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,36% í dag og endaði í 1,8880 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,35% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 0,84% í viðskiptum sem hljóða upp á 191 milljón króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 60 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Marel, eða um 0,83% í 163 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Marel er þá 242 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Símans, eða um 1,27% í 168 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Símans er þá 3,11 krónur. Gengi símans er nú lægra en það var upprunalega við hlutafjárútboð á bréfum félagsins sem haldið var 5. október, en þá var meðaltalsgengi bréfanna 3,33 krónur.

Einnig lækkaði gengi bréfa Vodafone í dag, eða um 0,49% í viðskiptum sem hljóða upp á 127 milljónir króna. Verð á hvert bréf er þá 45,88 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 1,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 6,8 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,3% í dag í 1,3 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,4% í dag í 6,2 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,5% í 1,8 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 4,4 milljarða króna viðskiptum.