Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,44% í dag og endaði í 1,799 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,31% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Reita, eða um 1,21% í viðskiptum sem hljóða upp á 203 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 83,8 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa N1, eða um 1,30% í 195 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf N1 nemur þá 54,6 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Símans um 3,65% í 270 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Símans er þá 3,43 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Vodafone um 2,07% í 276 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 44,85 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 2,7 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 2,2 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,5% í dag í 2,3 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 2,1 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 0,3 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 1,9 milljarða króna viðskiptum.