Í kjölfar rannsóknar Samkeppniseftirlitsins hafa Síminn, Landsvirkjun og Fjarski ehf., dótturfélag Landsvirkjunar, gert sátt við Samkeppniseftirlitið og fallist á að hafa haft með sér ólögmætt samráð í tengslum við kaup Símans á eignarhlut í Fjarska, og við kaup Símans á sex ljósleiðarastrengjum á milli Hrauneyjarfossstöðvar og Akureyrar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlinu. Síminn hefur fallist á að greiða 55 milljónir í stjórnvaldssekt og Landsvirkjun 25 milljónir. Samkeppniseftirlitið segir Símann leiðandi aðili í samráðinu, sem skýrir mismun á sektarfjárhæð.

Í febrúar 2005 keypti Síminn fjórðungshlut í Fjarska, sem starfar meðal annars á fjarskiptamarkaði ásamt því að kaupa af Fjarska sex ljósleiðarastrengi af tólf á milli Hrauneyjafossstöðvar og Akureyrar. Eftir að greint var frá þessu samstarfi í fréttum hófu samkeppnisyfirvöld að eigin frumkvæði rannsókn sem leiddi til þess að aðilum var sent andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins.

Í andmælaskjalinu kom fram það frummat eftirlitsins að markmiðið með samningum félaganna hafi verið að raska samkeppni og skipta með sér markaði á sviði fjarskipta og með því hafi aðilar farið gegn 10. grein samkeppnislaga.

Í kjölfar þess að andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins var birt leituðu aðilar hvor fyrir sig eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið sem leiddi til ofangreindrar niðurstöðu.

Í sáttinni felst að aðilar málsins viðurkenna að hafa farið gegn 10. grein samkeppnislaga og fallast á að ógilda þá samninga sem voru grundvöllur brota.