Alls verður 29 starfsmönnum Símans sagt upp en stjórnendum og starfsfólki Símans verður fækkað og deildir sameinaðar. Forsvarsmenn Símans kynntu í dag nýtt skipulag fyrirtækisins á fundi með starfsfólki.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum.

Þar segir að efnahagsástandið í kjölfar hrunsins hafi komið við Símann eins og önnur fyrirtæki á Íslandi. Einkaneysla hafi minnkað og fá teikn séu á lofti um að það sé að breytast. Þá hafi markaðshlutdeild Símans dregist saman eins og kunnugt er.

„Markmið okkar með þessum breytingum er að ná fram hagræði í rekstrinum,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans í tilkynningunni.

„Við höfum frá ársbyrjun 2008 unnið markvisst að því að lækka kostnað í rekstrinum án þess að fækka starfsfólki og það hefur gengið í samræmi við áætlanir. Aðstæðurnar nú eru hins vegar afar óvenjulegar.  Mikill almennur samdráttur í eftirspurn hefur leitt til þess að tekjurnar hafa lækkað hraðar en búast mátti við. Því er nauðsynlegt að grípa til aðgerða.“