Samkeppniseftirlitið hefur í ákvörðun sinni í dag komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi gerst brotlegur við skilyrði sem eftirlitið setti honum í fyrri ákvörðun og þannig raskað með alvarlegum hætti samkeppni frá minni keppinautum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitin sem hefur jafnframt sektað Símann um 150 miljónir króna.

Aðdragandinn að málinu er að Samkeppniseftirlitinu barst kæra frá TSC ehf. þar sem því var haldið fram að Síminn hefði brotið gegn skilyrðum sem sett voru í ákvörðun samkeppnisráðs um samruna Landssíma Íslands hf. og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf. TSC er fjarskiptafyrirtæki sem starfar á norðanverðu Snæfellsnesi og er keppinautur Símans.

Umrædd ákvörðun samkeppnisráðs fjallaði um samruna Símans og Íslenska sjónvarpsfélagsins (nú undir heitinu Skjárinn miðlar ehf.). Í henni var komist að þeirri niðurstöðu að samruninn raskaði samkeppni og að þörf væri á íhlutun vegna hans. Var bent á að óbreyttu styrki samruninn markaðsráðandi stöðu Símans á þeim fjarskiptamörkuðum er málið varðar og að hætta væri á því að samruninn takmarkaði verulega möguleika keppinauta Símans til þess að veita samkeppni, t.d. ef Síminn hefði óeðlilegan forgang að dreifingu sjónvarpefnis frá Íslenska sjónvarpsfélaginu. Síminn óskaði eftir því að gerð yrði sátt í málinu og varð það niðurstaðan.

Sjá nánar á vef Samkeppniseftirlitsins.