Veitingastaðurinn Hamborgarafabrikkan mun opna í maímánuði fyrir neðan KEA Hótel á Akureyri. Simmi og Jói, eigendur staðarins, eru fyrir norðan um helgina þar sem þeir hitta umsækjendur. Þegar hafa um tvö hundruð manns sótt um starf.

VB Sjónvarp fékk að kíkja á staðinn þar sem framkvæmdir standa nú yfir.