Símon Þór Jónsson er nýr sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs EY á Íslandi.  Símon hóf störf hjá EY á árinu 2016 og er einn af eigendum félagsins.

Hann er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með diploma í hagfræði frá sama skóla, auk þess sem hann hefur sótt sér menntun í Leiden University varðandi tvísköttunarsamninga.

Símon hefur mikla þekkingu og reynslu á flóknum skattamálum, hefur áratuga starfsreynslu á því sviði og hann hefur áður starfað hjá Ríkisskattstjóra og skatta- og lögfræðisviði KPMG og Deloitte.