Breski bankinn Singer & Friedlander PLC hefur sent tilkynningu til Kauphallarinnar í Lundúnum um að hugsanlega sé tilboð í bankann á leiðinni. Stjórn Singer & Friedlander Group PLC ("Singer & Friedlander") segist í tilkynningunni hafa orðið vör við skyndilega hækkun á bréfum félagsins. Stjórnin hefur því ákveðið að staðfesta að viðræður séu hafnar við Kaupthing Bank hf. og þær geti hugsanlega leitt til þess að tilboð berist í útistandandi hlutabréf Singer & Friedlander.

Stjórnin tekur þó fram að alls óvíst sé hvernig viðræðunum reiðir af.