Sirrý Hallgrímsdóttir hefur ráðið sig til KOM – Almannatengsla þar sem Jón Hákon Magnússon ræður ríkjum. Hún var þróunarstjóri hjá Keldunni áður en hún ákvað að söðla um. Þá hefur Sirrý einnig verið virk innan Félags viðskipta og hagfræðinga (FVH) þar sem hún er formaður fræðslunefndar.

Guðmundur Birgisso n, framkvæmdastjóri Keldunnar, er einnig hættur en tilkynnt hefur verið um að Friðrik Guðjónsson taki við starfi hans. Hann starfaði áður við fjármálaráðgjöf og verðbréfamiðlun auk þess að hafa komið að rekstri sprotafyrirtækja. Friðrik er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.