Sirrý Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra. Fram kemur í tilkynningu að Sirrý er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og hefur hún undanfarið starfað sem ráðgjafi hjá almannatengslafyrirtækinu KOM. Sirrý hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu bæði á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi. Hún hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri hjá SJÁ ehf, sem aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Creditinfo Group og hafði m.a. starfsstöð í Aþenu, þar sem hún hafði einnig umsjón með starfstöðvum fyrirtækisins á Möltu og Kýpur. Hún tók sömuleiðis þátt í  tofnun starfstöðva Creditinfo í Úkraínu og Kasakstan. Sirrý hefur gegnt stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra Industria og starfaði þá m.a. á Írlandi og í Búlgaríu. Þá hefur hún bæði tekið þátt í stofnun og setið í stjórn nokkurra fyrirtækja.

Sirrý er varaformaður Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga og hefur tekið virkan þátt í félagsstarfi Sjálfstæðisflokksins. Hún er formaður Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, var formaður Upplýsinga- og fræðslunefndar Sjálfstæðisflokksins, sat í miðstjórn og var um skeið varaformaður Landssambands sjálfstæðiskvenna.

Auk þess situr Sirrý í stjórn Vinafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem og í stjórn Áslaugarsjóðs, styrktarstofnunar Sinfónuhljómsveitarinnar og um skeið sat hún í stjórn Íslenska dansflokksins. Sirrý er jafnframt formaður jafnréttisnefndar Bandalags kvenna í Reykjavík.