Hluthafafundur FL Group verður haldinn í dag og er sjálfkjörið í stjórn félagsins. Í framboði til aðalstjórnar eru Skarphéðinn Berg Steinarsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Magnús Ármann, Smári S. Sigurðsson og Þorsteinn M. Jónsson. Í framboði sem varamenn eru Kristinn Bjarnason og Þórður Bogason.

Þess má geta að Vilhjálmur Bjarnason aðjúnkt og hluthafi í FL Group hefur boðað umræðu á fundinum um kaupin á Sterling. Í morgunútvarpi Rásar 2 kom fram að hann hyggst spyrja endurskoðendur félagsins um meinta þriggja milljarða króna lánveitingu út af reikningum félagsins í sumar.

Hluthafafundur félagsins er á Nordica hóteli í dag kl. 14.